Verkstjórasamband Íslands
Lyfjablöndunarskápur

Í mars síðastliðnum gaf sjúkrasjóður VSSÍ, ásamt öðrum félögum, Heilbrigðisstofnun Austurlands nýjan lyfjablöndunarskáp. Hér fyrir ofan má sjá skápinn, Kristján Örn Jónsson, forseta VSSÍ og Reyni Kristjánsson, formann Sjúkrasjóðs, við afhendinguna.
Loksins jákvæðar fréttir
Ráðherra ætlar að leiðrétta ranglætið.
Áreiðanlegar heimildir eru fyrir því að félagsmálaráðherra sé með tilbúið frumvarp til laga sem afnemur skerðingu á atvinnuleysisbótum við töku séreignasparnaðar. Núverandi lög gera ráð fyrir skerðingu hjá 60 ára og eldri.
33. Landsfundur Verkstjórasambands Íslands
Var haldin á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 8. maí sl. til fundarins voru boðaðir allir formenn verkstjórafélaganna 13 ásamt fulltrúum þeirra og nefndarformenn.
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA var gestur fundarins og fór hann yfir lífeyrismálin og stöðuna í efnahagsmálunum.
Á fundinum voru eftirfarandi ályktanir samþykktar:
Landsfundur Verkstjórasambands Íslands haldinn á Grand Hótel Reykjavík þann 8. maí 2010. Skorar á ríkisstjórn Íslands að beita sér án tafar fyrir endurreisn atvinnulífsins.
Landsfundur Verkstjórasambands Íslands haldinn á Grand Hótel Reykjavík þann 8. maí 2010. Skorar á bæjar og sveitastjórnir landsins að beita sér að alefli fyrir uppbyggingu atvinnu hvert á sínum stað.
Dregið hefur verið í happdrætti launakönnunnar VSSÍ
Eftirtalin happdrættisnúmer voru dregin út í launakönnun VSSÍ 2009.
300332
300747
302995
304810
317072
325615
328399
331853
332498
334175
Þeir heppnu sem eiga þessi númer vinsamlega hafið samband við Tómas Bjarnason Capasent Símí 540-1000 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Staðgreiðsluskattur af öllum styrkjum og námskeiðum.
Frá 1. febrúar verður tekin staðgreiðsluskattur af öllum styrkjum þ.e. sjúkraþjálfun, gleraugum o.þ.h. Aðeins dánarbætur eru undanþegnar staðgreiðslu.
Styrkir hafa lengi verið skattskyldir og hefur þurft að gera grein fyrir þeim á skattaframtali. Nú hafa allir styrkþegar fengið senda launamiða fyrir skattaframtalið vegna 2009 og þar kemur fram hvar á að setja styrkina.
Það þykir mjög til bóta að taka staðgreiðsluna strax af bótaupphæð heldur en að bíða fram á næsta ár.
Sama á við um öll námskeið - frá 1. febrúar verður tekin staðgreiðsluskattur af öllum námskeiðum.
Úthlutun úr Starfsmenntasjóði SA og VSSÍ
Í byrjun árs 2010 hefst móttaka umsókna um námskeiðsstyrki til verkstjóra í samræmi við reglur Starfsmenntasjóðs SA og VSSÍ. Markmið sjóðsins er að stuðla að því að starfandi verkstjórum bjóðist heilstæð grunn- og endurmenntun sem uppfyllir þekkingarkröfur sem verkstjórar þurfa að búa yfir á hverjum tíma.
Þessar kröfur eru skilgreindar í Reglum til að meta styrkhæfni námsframboðs þar sem taldar eru upp þær hæfnikröfur sem lagðar verða til grundvallar þegar úrskurðað er hvort námskeið eru styrkhæf. Samkvæmt vinnureglum sem stjórn sjóðsins hefur samþykkt um veitingu námsstuðnings skal umsækjandi kynna sér fyrirfram hvort námskeið sem hann hefur hug á að sækja sé styrkhæft. Í þessum reglum er einnig getið um hverjir eiga rétt á styrk, hámark kostnaðar sem sjóðurinn greiðir fyrir þátttöku á námskeiðum og fleiri atriði.
Þeim sem hyggjast sækja um styrk úr sjóðnum er bent á að kynna sér reglugerð sjóðsins og sækja síðan um á eyðublaði sem er undir "Eyðublöð Menntunarsjóður"
Fleiri greinar...
Síða 1 af 4


















