Text Size
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Verkstjórasamband Íslands

Úttekin séreignasparnaður í atvinnuleysi.

Það er ekki vandalaust að taka út séreignasparnað ef viðkomandi er atvinnulaus. Þetta er sagt að gefnu tilefni. Félagsmaður sem verið hefur atvinnulaus um nokkurt skeið hugðist létta mánaðarlegar greiðslur og tekur út séreignasparnaðinn til niðurgreiðslu á láni. Hver króna sparnaðarins sem ekki fór í skattinn var notuð til að niðurgreiða höfuðstól á íbúðaláni. Í atvinnuleysi er úttekinn séreignasparnaður flokkaður sem tekjur og getur því valdið skerðingu bótagreiðslna. Í þessu tilfelli verða bætur skertar um 25% næstu mánuði, skerðing hefði orðið meiri, en lög um atvinnuleysisbætur leyfa ekki hærri skerðingu. Þeir sem eru í vinnu, 60 ára og eldri geta tekið út séreign sína til seinni tíma nota án vandræða en atvinnulausir ekki. Send var fyrirspurn til Vinnumálastofnunar og spurt hvað miklar tekjur má hafa án þess að til skerðingar komi.

Í svari frá Vinnumálastofnun segir: "Það má hafa tekjur upp að frítekjumarkinu án þess að það hafi áhrif á bætur þó þarf að gefa þær tekjur upp til okkar. Ef fólk tekur út séreignasparnað skv. lögum nr. 13/2009 þá skerða þær tekjur ekki atvinnuleysisbætur. Ef fólk er að taka út séreignasparnað eins og það gat gert fyrir þessa lagabreytingu þá munu þær tekjur skerða bæturnar í þeim mánuði sem sparnaðurinn er tekinn út".

Þetta verða menn að hafa í huga ef til atvinnumissis kemur, eins er gott að skoða vef Vinnumálastofnunnar www.vinnumalastofnun.is og kynna sér hvað þar er í boði.

Kveðja,

Kristján Örn Jónsson forseti/framkvæmdastjóri VSSÍ.

   

Laun undir 220.000,- hækka 1. nóvember.

Laun hækka þann 1. nóvember. Kjarasamningur milli VSSÍ og SA mun gilda út nóvember 2010 eins og kunnugt er var eindagi fyrir uppsögn þeirra þ. 27. okt. s.l.

Hækkanir koma til framkvæmda sem hér segir: Þeir verkstjórar sem hafa lægri mánaðarlaun en kr. 220.000,- hækka um kr. 8.750,-.

 ATH:  Sá misskilningur virðist vera í gangi að laun verkstjóra sem vinna eftir samningum SA taki krónutöluhækkun frá og með 1. nóvember. Sú hækkun kemur eingöngu á lægstu launataxtana. Laun verkstjóra sem vinna á samningum SA eru þar allnokkru fyrir ofan og taka því ekki krónutöluhækkun.

Laun hækka um 3,5% frá 1. nóvember, hafi menn fengið launahækkun á árinu dregst hún frá þessari hækkun. Hafi hún verið hærri en 3,5% stendur sú hækkun.

   

Ný kjarakönnun komin.

lk2009Ný kjarakönnun sem Capacent gerði fyrir VSSÍ er komin. Smellið á myndina til að fá könnunina.
   

Launahækkanir 1. júlí 2009

Þann 1. júlí hækkuðu laun verkafólks sem hafa lægri mánaðarlaun en . 220.000,- um kr. 6.750,- . Laun iðnlæðra sem hafa lægri laun en kr. 220.000,- hækka um kr. 8.750,-.  Hækkun verður aftur þann 1. nóvember um sömu krónutölu.
   

Nýráðinn ráðgjafi Starfsendurhæfingarsjóðs.

Þann 1. ágúst síðastliðinn var Sigrún Sigurðardóttir ráðin sem ráðgjafi sjúkrasjóðs hjá Verkstjórasambandinu.  Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaganna og Virk, Starfsendurhæfingarsjóðs. Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.

Sigrún er með skrifstofu í Borgartúni 30, 6. hæð. Vinnutími er mánudaga, fimmtudaga og annan hvorn miðvikudag. Fastur viðtalstími er kl. 13:00-14.00 á fimmtudögum. Netfang, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Lesa nánar: Nýráðinn ráðgjafi Starfsendurhæfingarsjóðs.

   

Ný heimasíða

Eins og glöggt má sjá hefur Verkstjórasambandið látið endurgera heimasíðu sína.  Síðan er gerð í Joomla-vefumsjónarkerfi og hönnun og uppbygging hennar er í höndum Austurnets ehf. á Egilsstöðum og verkið hefur Þórunn Hálfdanardóttir unnið.  Gerð síðunnar er ekki lokið en þar sem nánast ómögulegt var að uppfæra gömlu síðuna, var ákveðið að setja nýju síðuna í loftið strax, þó hún sé alls ekki fullkláruð.  Undirsíður þeirra aðildarfélaga sem vistaðar voru með gömlu síðunni, verða settar upp til bráðabirgða, en nauðsynlegt er að endurnýja þær einnig. 

Allar ábendingar um leiðréttingar má senda til Jóhönnu á skrifstofu VSSÍ.

   

Ný kjara- og launakönnun VSSÍ 2009

Enn á ný framkvæmir Capacent launa og kjarakönnun fyrir VSSÍ. Hringt var í alla félagsmenn og þeir spurðir hvort að þeir vilji taka þátt. Þeir sem samþykktu það fengu síðan sendan spurningalistann í tölvupósti eða almennum pósti eftir óskum. Þeir sem svöruðu innan tímamarka lentu í hópi þar sem dregnir voru út 10 vinningshafar ferðavinninga. Þrátt fyrir erfiða stöðu á vinnumarkaði er mjög mikilvægt að sem allra flestir taki þátt þannig að marktækar niðurstöður fáist. Niðurstöðurnar verða okkur styrkur í framtíðinni. Það er eftir ýmsu að slægjast að taka þátt í könnunum VSSÍ. Niðurstöðurnar eru félagsmönnum mikilvægt og öflugt vopn í baráttunni fyrir bættum kjörum. Launakannanir eru einungis gerðar meðal félagsmanna. Markmiðið að veita þeim upplýsingar um markaðslaun í mismunandi starfsgreinum svo þeir geti borið laun sín saman við þau laun sem greidd eru í hliðstæðum starfsgreinum. Launakönnunin veitir einnig mikilvæga innsýn inn í þróun launa og launamunar milli kynja.

Lesa nánar: Ný kjara- og launakönnun VSSÍ 2009

   

Samkomulag um frestun á endurskoðun kjarasamninga

Skrifað hefur verið undir samkomulag VSSÍ og SA um frestun á endurskoðun kjarasamninga þannig að henni ljúki eigi síðar en fyrir lok júní 2009.  Samkomulag náðist um frestun fyrirhugaðra launahækkana 1. mars en ákveðið var að fresta ákvörðun um endurskoðun kjarasamninga um allt að fjóra mánuði.  Önnur ákvæði samninganna koma til framkvæmda.Samningsaðilar telja frestunina mikilvægt framlag til stöðugleika í efnhagslífinu. Samningur þessi er í samræmi við ákvæði í niðurstöðu forsendunefndar SA og ASí og samning milli þessara aðila.Tilvísun í niðurstöðu þessarar nefndar er hluti af forsendum í flestum kjarasamningum  VSSÍ.
   

Afslættir til félagsmanna

Við minnum á afslætti þá sem bjóðast félagsmönnum. Sent var bréf til allra félagsmanna þar sem þetta var tíundað (Geymið bréfið). 

Afslættir:  Eldsneyti,  ásamt vörum fyrir bifreiðina ofl. hjá N1. Byggingavörur, ýmiskonar heimilisbúnaður ofl: Húsasmiðjan  gefur félagsmönnum okkar 12% afslátt af öllum vörum ef að verslað er út á staðgreiðslureikning Verkstjórasambands Íslands.  (Við fáum hugsanlega hærri afslátt eftir 6 mán. ef mikið er verslað. ) Tilgreina þarf kennitölu Verkstjórasambandsins sem er:  680269 – 7699.

Ath. að nú býður BYKO 13% afslátt ef verslað er á sama hátt og hjá Húsasmiðjunni (Gildir ekki um tilboðsvörur) Afsláttar hjá BYKO var ekki getið í bréfinu.

Gisting ofl: Grand Hótel Reykjavík gefur mjög góðan afslátt af gistingu og veitingum.  Sömu leiðis færst afsláttur  hjá Hótel Reykjavík Centrum og Fosshótelum.

Hótel Keflavík gefur góðan afslátt.

Hótel Smári í Kópavogi gefur 10% afslátt.

   

Réttur skapast ef starfsemi er skert

Alþingi samþykkti í dag frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur félags- og tryggingamálaráðherra um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðarsjóð launa.  Í breytingunum felst m.a. að réttur til atvinnuleysisbóta að hluta skapast á móti skertu starfshlutfalli. Þessi réttur skapast ef skerðingin kemur til að frumkvæði atvinnurekanda vegna samdráttar.
Í frétt á vef ASÍ segir að sama gildi ef starfsmaður hefur misst starf sitt að öllu leyti og ræður sig í minna starfshlutfall en hann var áður í hjá nýjum atvinnurekanda enda eigi hann ekki kost á öðru. Sama gildir einnig ef viðkomandi hefur verið í tveimur hlutastörfum og missir annað þeirra, alveg eða að hluta. Miðað er þó við að starfsmaður sé í  samtals a.m.k. 50% starfi á vinnumarkaði.

Lög um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðarsjóð launa

 

   

Síða 2 af 4

Virkir notendur

Það eru 2 gestir á síðunni núna

Leita

Heimsóknir

Innlit : 42633

Fréttaveita