Text Size
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Verkstjórasamband Íslands

Vandamál með hvíldartíma verkstjóra

 

Nýlega (12. júní 2008) féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem leitað var réttar fyrir hönd stjórnanda sem hafði um langt árabil unnið ólöglega langan vinnudag. Hann var á föstum launum með innifalda ótilgreindar yfirvinnustundir. Það var þó ekki fyrr en við starfslok hjá fyrirtækinu sem að hann leitaði fast eftir því að fá þennan vantekna hvíldartíma uppgerðan. Í fyrstu var því ekki illa tekið af hálfu fyrirtækisins að þetta yrði gert upp.

Lesa nánar: Vandamál með hvíldartíma verkstjóra

   

Samningur við ríkið samþykktur.

Verkstjórar sem starfa hjá ríkinu hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning sinn. Atkvæði greiddu 52% starfandi verkstjóra hjá ríkinu.  Af þeim samþykktu 97% samninginn, en 3% höfnuðu honum.


Nýr samningur við ríkið

Fimmtudaginn 29. maí skrifaði samninganefnd Verkstjórasambandsins undir nýjan kjarasamning við ríkið. Samningurinn er til tæplega árs eða til 31. mars 2009 og gildir frá 1. maí, hann er að stærstum hluta samhljóða þeim samningum sem samninganefnd ríkisins hefur gert við aðra aðila til þessa. Nokkur megin atriði eru:

Öll laun hækka um a.m.k. 20.300.- kr. , Ný launatafla tekur síðan við og bætir þá nokkurri hækkun við hjá sumum (þó númer launaflokksins lækki). Aldursþrepum er fækkað um eitt í launatöflunni, hækkanir koma fyrr og hæsta þrep er fyrir 35 ára. Framlag í sjúkrasjóð hækkar í 0,75%.
Réttur foreldra vegna veikinda barna eykst um 2 daga úr 10 dögum í 12. Kaflinn um samstarfsnefndina er nokkuð endurskoðaður og umorðaður. Ríkið verður aðili að endurhæfingarsjóði vegna verkstjóra. Samningurinn er hér

   

Ályktun landsfundar Verkstjórasambands Íslands 2008

Haldinn 17. maí á Grand Hótel Reykjavík

Vinnuslys og tryggingar

Mikið vantar uppá að menn séu nægilega vel tryggðir komi til vinnuslyss. Fjölmörg dæmi tala sínu máli um það hvernig  framtíðarafkomu fólks hefur verið rústað við þau vinnuslys sem hafa haft fulla örorku í för með sér.

Það verður ekki séð að slysabætur vegna vinnuslysa bæti mönnum upp eðlilegar framtíðar tekjur. Við slíkar aðstæður eru menn dæmdir til þess, auk líkamlegra annmarka, að búa við fátækt.

Lesa nánar: Ályktun landsfundar Verkstjórasambands Íslands 2008

   

70 ára afmæli Verkstjórasambandsins 10. apríl 2008

Þann 10. apríl voru liðin 70 ár frá stofnun Verkstjórasambandsins. Þeim tímamótum var fagnað með útgáfu blaðs sem fylgdi Morgunblaðinu til áskrifenda en var einnig sent  félagsmönnum okkar í pósti. HÉR ER BLAÐIÐ. Um tíma stóð það til að halda ráðstefnu þennan dag, en horfið var frá því.Landsfundur Verkstjórasambandsins sem haldinn verður í maí verður með veglegra móti í tilefni afmælisins.
   

Ertu tryggður ?

Um langt skeið höfum við hjá  Verkstjórasambandinu haft áhyggjur af því  hvort að félagsmenn okkar séu nægilega vel tryggðir sem starfsmenn og stjórnendur fyrirtækja.Við höfðum áhyggjur af því að í mörgum tilfellum geta félagsmenn setið uppi með mikla fjárhagslega ábyrgð ef illa fer og alvarleg slys ber að höndum, ef þeir  t.d. dæmast ábyrgir og greiðslugeta er ekki til staðar hjá fyrirtækinu.Sambandið leitaði leiða til að tryggja félagsmenn okkar við slíkar aðstæður.  Eftir að hafa leitað til nokkurra stærstu Tryggingafélaganna, sem öll nema eitt sögðu þetta ómögulegt. VÍS var tilbúið að leggja vinnu í það að kanna hvort að VSSÍ gæti tryggt félagsmenn sína á þennan hátt.  Eftir nokkurra vikna athugun sérfræðinga þeirra og nokkra fundi þeirra með okkur komust þeir einnig að þeirri niðurstöðu að slík trygging væri ómöguleg.  Það væri ekki hægt að skilgreina hana og hún yrði einnig beint brot á lögum um tryggingar.  Þessi niðurstaða var okkur mikil vonbrigði.Tryggingamenn bentu okkur á að tryggingar vinnuveitenda ættu með húsbóndaábyrgðinni að taka á þessum málum.  Þegar þeim var bent á að menn væru stundum óöruggir með að slíkar tryggingar væru til staðar eða í skilum. Þá svöruðu þeir því að hverjum og einum væri frjálst að fá upplýsingar um slíkt hjá tryggingafyrirtæki því sem fyrirtækið tryggði hjá.  Mörgum þætti þó e.t.v. eðlilegra að spyrjast fyrst fyrir hjá fyrirtækinu sjálfu og fá síðan staðfestingu hjá Tryggingarfélaginu. Tryggingar þessar eru fyrir fyritækið og tryggir starfsmenn þess en ónafngreint, aðeins ákveðin fjölda manna.Við viljum því hvetja þá sem eru óöruggir með ástand þessara mála á sínum vinnustað að afla sér upplýsinga um stöðu mála. 

Kristín Sæunnar Sigurðardóttir

Framkvæmdastjóri VSSÍ

   

Síða 4 af 4

Virkir notendur

Það eru 2 gestir á síðunni núna

Leita

Heimsóknir

Innlit : 42633

Fréttaveita