Laun undir 220.000,- hækka 1. nóvember.
Laun hækka þann 1. nóvember. Kjarasamningur milli VSSÍ og SA mun gilda út nóvember 2010 eins og kunnugt er var eindagi fyrir uppsögn þeirra þ. 27. okt. s.l.
Hækkanir koma til framkvæmda sem hér segir: Þeir verkstjórar sem hafa lægri mánaðarlaun en kr. 220.000,- hækka um kr. 8.750,-.
ATH: Sá misskilningur virðist vera í gangi að laun verkstjóra sem vinna eftir samningum SA taki krónutöluhækkun frá og með 1. nóvember. Sú hækkun kemur eingöngu á lægstu launataxtana. Laun verkstjóra sem vinna á samningum SA eru þar allnokkru fyrir ofan og taka því ekki krónutöluhækkun.
Laun hækka um 3,5% frá 1. nóvember, hafi menn fengið launahækkun á árinu dregst hún frá þessari hækkun. Hafi hún verið hærri en 3,5% stendur sú hækkun.
















