Reglugerð Starfsmenntasjóðs SA og VSSÍ.
Reglugerð um styrki Starfsmenntasjóðs SA og VSSÍ.
Vinnureglur „Starfsmenntasjóðs SA og VSSÍ“ um veitingu námsstuðnings. Gildir frá 01.01.2010 til 31.12.2010
Stjórnin ákveður styrk til viðurkenndra námskeiða að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum.
- Starfandi einstaklingur (eða fyrirtæki fyrir hans hönd) sem greitt hefur verið af til sjóðsins í 6 mánuði eða lengur, á rétt á styrk.
- Umsækjandi skal kynna sér fyrirfram hvort fyrirhugað nám sé styrkhæft. Umsókn berist sjóðnum og staðfesting fengin á styrkhæfni áður en nám hefst. Eftir námslok þarf að skila frumriti reiknings á skrifstofu VSSÍ innan þriggja mánaða frá lokum náms ásamt staðfestingu um að námi sé lokið á fullnægjandi hátt.
- Sjóðurinn greiðir að hámarki 80% af kostnaði hvers námskeiðs. Hámarksstyrkir sem hver einstaklingur getur fengið er þó kr. 90.000- á árinu. Yfir þriggja ára tímabil geta styrkir orðið að hámarki kr. 180.000.-. Sjóðstjórn getur gert undanþágu frá þessari reglu.
- Félagsmaður sem missir vinnu, heldur rétti sínum í allt að 12 mánuði, að því gefnu að hann sé áfram félagsmaður aðildarfélags VSSÍ. Að þeim tíma liðnum fellur réttur hans niður. Starfsmaður, sem lætur af störfum vegna aldurs, heldur ekki áunnum réttindum sínum.
















