Text Size
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Reglur til að meta styrkhæfni námsframboðs.

Markmið sjóðsins

Stuðla að því að starfandi verkstjórum innan aðildarfélaga hans bjóðist ávallt heilstæð grunn- og endurmenntun sem uppfyllir þekkingarkröfur sem verkstjórar þurfa að búa yfir á hverjum tíma.

 Sjóðurinn skal m.a. vinna að eftirfarandi:

 „Meta námsframboð og viðurkenna námstilboð sem uppfylla kröfur um skilgreint nám og ákvarða styrkframlag til þeirra.

 Grundvöllur mats á námsframboði

 Matið byggir annars vegar á inntaki þess náms sem boðið er og hins vegar á fag-mennsku við hönnun þess,  þróun, framsetningu og framkvæmd.

Inntak námsframboðs þarf að taka mið af hæfnikröfum millistjórnenda á hverjum tíma.

Í meginatriðum er gerð krafa um ferns konar hæfni:

  1. Samskiptahæfni
  2. Stjórnun og rekstur
  3. Að mæta þekkingarþörfum undirmanna
  4. Fagþekkingu

 Námstilboð er viðurkennt styrkhæft, með tilliti til inntaks, ef það fjallar um einn eða fleiri eftirtalinna þátta:

  1.  Samskiptahæfni

 Hæfni á þessu sviði er ekki eingöngu ásköpuð. Farsæld verkstjóra byggist einnig á skilgreindri þekkingu og færni. Samskiptahæfni þróast með reynslu, þjálfun og markvissri þekkingarleit.

 Eftirtaldir málaflokkar eru lagðir til grundvallar í þessu sambandi:

 -      Stefna fyrirtækja og hlutverk ásamt ábyrgð yfir- og  millistjórnenda

-      Staða, réttindi og skyldur millistjórnenda

-      Samskipti við viðskiptavini og birgja

-      Samskiptatækni, munnleg og skrifleg tjáning

-      Hópefli til að ná settum markmiðum

-      Hvatning og starfsánægja

-      Mannauðsstjórnun í víðri merkingu

-      Þekking á vinnumarkaði, öryggismálum, lögum, reglum og kjarasamningum

-      Rétt viðbrögð við vandamálum á vinnustað

-      Móttaka nýrra starfsmanna, starfsmannaviðtöl o.s.frv.

-      Stjórnun ólíkra menningarhópa

  1.   Stjórnun og rekstur

Millistjórnendur þurfa jafnan að hafa aðgang að fræðslu um grundvallaratriði í rekstri fyrirtækja, bæði til að skynja hlutverk sitt og einnig til að auka eigin færni í stjórnunarlegum efnum. Mið er tekið af eftirtöldum málaflokkum:

-      Þekking á grundvallaratriðum í stefnumótun og rekstri fyrirtækja í opinni samkeppni og kunnáttu á þeim atriðum í starfsumhverfinu sem mestu skipta

-      Lestur ársreikninga, bókhald og kostnaðarreikningar

-      Innkaup og birgðahald

-      Gæðastjórnun, notkun staðla og vottun þannig að verkstjóri verði betur meðvitaður um hlutverk sitt sem miðlægt „stjórnvald“ í viðkomandi fyrirtæki

-      Framleiðni, á hverju hún byggist og hvaða máli hún skiptir fyrir rekstur og samkeppnishæfni og hvernig hægt er að auka hana með markvissum aðgerðum

-      Áætlanagerð, skipulagning og stýring verkefna, mannafla-, aðfanga og tímastjórnun og afkastahvatar

-      Markaðsmál. Markaðssetning, kröfur viðskiptavina, samkeppni

-      Tölvufærni svo sem í Word, Excel, PowerPoint, MS Project

-      Tungumál sem tengjast daglegu starfi viðkomandi verkstjóra

  1.   Að mæta þekkingarþörfum undirmanna

 Í sameiginlegri yfirlýsingu VSÍ (nú SA) og VSSÍ frá 10. apríl 1996 er lögð áhersla á að verkstjórar gegni þýðingarmiklu hlutverki við að skil-greina hæfnikröfur sem undirmenn þeirra þurfa að standast hverju sinni. Verkstjórar þurfa jafnframt að „stuðla að því að þeir fái fræðslu og þjálfun til þess að uppfylla þær.“

Þeir þurfa því að kunna skil á:

 -      Þörfum viðkomandi fyrirtækis á hverjum tíma fyrir endurmenntun undirmanna

-      Hvernig meta skal þekkingarþörf undirmanna

-      Framboði og gæðum á endurmenntunarmarkaði

-      Hvernig móta á endurmenntunarstefnu innan fyrirtækja

-      Kennslu nemenda á vinnustað og skipulagningu ásamt ábyrgð og eftirliti 

  1.   Fagþekking

Þörf millistjórnenda fyrir fagþekkingu getur verið misjöfn milli einstakra starfsgreina. Oftast eru þeir lærðir í viðkomandi fagi og hafa jafnvel starfað við það um lengri eða skemmri tíma. Engu að síður gætu þeir þurft á faglegri endurmenntun að halda til að vera  færari um að stýra verkum, stjórna sérhæfðu starfsfólki og leiðbeina á fullnægjandi hátt.

 Viðurkenning námsframboðs

 Miðlunartæki eru valin með hliðsjón af inntaki. Þau eru: fyrirlestrar, kennslubækur, kennslutæki, glærur og æfingar.

Við mat á styrkhæfni námsframboðs er tekið mið af meginreglum fullorðinsfræðslu sem eru þessar:

  1. Tími nemenda er takmarkaður.  Efni á að vera samþjappað, skýrt og skipulega uppsett til að nýta tíma sem best.
  2. Nemendur hafa tiltekin og oft mjög skýr markmið í huga með námi sínu.  Námsefni og framsetning þess þarf því að taka mið af þeim markmiðum sem telja má að séu efst á baugi í nemendahópi hverju sinni.
  3. Nemendur bera með sér fyrri reynslu.  Framsetning verður að taka mið af henni.
  4. Takmörk eru fyrir þeim kröfum sem gera má til nemenda á stuttum tíma.
  5. Hvötun (motivation) fullorðinna nemenda er ákaflega mismun-andi. Nýtt efni og nýjar aðferðir eru hvetjandi.
  6. Fullorðnir nemendur hafa mismunandi námsnálgun (learning stiles).

 

Framkvæmdin felur í sér tímasetningar, fjölda nemenda, stað og aðstöðu.  Enn fremur skal tekið mið af áformum um markaðssetningu náms sem í  boði er (aðgengni að markhóp, auglýsingar, lýsing í námsvísi, verð, skírteini, hæfnisvottun o.s.frv.).