Text Size
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator

Sambandið

Verkstjórasamband Íslands - VSSÍ-  er félaga- og hagsmunasamtök verkstjóra og annara stjórnenda. Innan sambandsins eru þrettán verkstjórafélög um land allt. VSSÍ fer með samningsrétt félaganna. Enskt heiti er: The Icelandic Union of Formen and Supervisors.   

VSSÍ var stofnað 10. apríl 1938. VSSÍ gefur út blaðið Verkstjórann Á skrifstofu VSSÍ starfa þrír starfsmenn sem annast ýmis störf fyrir Verkstjórasambandið og aðildarfélög þess. Auk þess sér skrifstofan um alhliða upplýsingaþjónustu við félagsmenn í aðildarfélögum VSSÍ, svo sem upplýsingar um réttindi og kjör, samninga og samningamál.  

Fyrir hverja eru verkstjórafélögin?

Átt þú heima í verkstjórafélagi?

* Ef þú ert í stjórnunarstöðu hjá fyrirtæki eða starfsmaður sem hefur yfirráð yfir mönnum og /eða yfirumsjón með viðamiklum verkefnum, þá áttu ekki alltaf samleið með undirmönnum þínum. Verkstjórafélag er þá réttur félagsskapur fyrir þig.

* Ef þú ert einyrki og stundar sjálfstæða atvinnustarfsemi styrkir það stöðu þína og fjárhagslegt öryggi á vinnumarkaði að ganga í verkstjórafélag.

Gleymdu ekki að verkstjórar hafa sérstaka stöðu meðal launþega, sem trúnaðarmenn atvinnurekenda á vinnustað. Sú staða hefur áhrif á baráttu stéttarinnar fyrir hagsmunum sínum.