Tekin verður staðgreiðsluskattur af öllum námskeiðum þar sem öll námskeið eru skattskyld.
Á Landsfundi VSSÍ þann 8. maí sl. voru námskeiðsstyrkir hækkaðir . (sjá reglugerð).
Staðgreiðsluskattur af öllum styrkjum og námskeiðum.
Fimmtudagur, 11. febrúar 2010 12:21
Frá 1. febrúar verður tekin staðgreiðsluskattur af öllum styrkjum þ.e. sjúkraþjálfun, gleraugum o.þ.h. Aðeins dánarbætur eru undanþegnar staðgreiðslu.
Styrkir hafa lengi verið skattskyldir og hefur þurft að gera grein fyrir þeim á skattaframtali. Nú hafa allir styrkþegar fengið senda launamiða fyrir skattaframtalið vegna 2009 og þar kemur fram hvar á að setja styrkina.
Það þykir mjög til bóta að taka staðgreiðsluna strax af bótaupphæð heldur en að bíða fram á næsta ár.
Sama á við um öll námskeið - frá 1. febrúar verður tekin staðgreiðsluskattur af öllum námskeiðum.
Umsóknun um sjúkraþjálfun - sjúkranudd - kírópraktor
Fimmtudagur, 22. október 2009 10:58
Þarf að fylgja læknisvottorð. Vottorðið gildir í 12 mánuði. Tryggingastofnun rikisins hefur hert reglur um sjúkraþjálfun þannig að beiðni gildir aðeins um 25 skipti. Þann 1. okt. hækkuðu greiðslur frá TR í 2.858,- kr. pr. skipti og í 817,- kr. fyrir aldraða og öryrkja. Þetta eru upphæðirnar sem Sjúkrasjóður VSSÍ miðar við.
ATH. Sjúkrasjóður greiðir aðeins reikninga frá löggiltum sjúkraþjálfurum, sjúkranuddurum og kírópraktorum.
Fyrir félagsmenn
Miðvikudagur, 02. september 2009 14:59
Lára V. Júlíusdóttir hrl., er lögfræðingur Verkstjórasambands Íslands. Hún veitir félagsmönnum lögfræðilega aðstoð ef þeir þess óska.
Vinsamlegast hafið fyrst samband við skrifstofuna.